30. Júní 2026

Þjónustuslit vegna MiCA

ismynt.is

Við hjá Ismynt höfum frá byrjun árs 2025 unnið náið með Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu að því að uppfylla nýjar og strangar kröfur MiCA og DORA reglugerðanna. Í þessari vegferð höfum við innleitt fjölda nýrra kerfa, ferla og reglna. Það er okkar skýra mat að Ismynt uppfylli allar þessar kröfur til fulls og að starfsemin sé að öllu leyti í samræmi við lög og reglugerðir.

Þrátt fyrir þetta hefur Seðlabanki Íslands tekið þá ákvörðun að veita ismynt ehf. ekki starfsleyfi við upphaf innleiðingar reglugerðanna, frá og með 1. júlí 2026. Þessi ákvörðun veldur því að við þurfum að slíta starfsemi félagsins að beiðni Seðlabanka Íslands og stöðva alla þjónustu er snýr að þjónustu rafmynta.

Við hörmum innilega að þessi staða sé komin upp og þökkum fyrir viðskiptin og tryggðina sem viðskiptavinir okkar hafa sýnt okkur hingað til.

Hafir þú einhverjar spurningar getur þú náð í okkur í help@ismynt.is.

Kveðja, Aðstandendur ismynt ehf.


30 júní síðastliðin var öllum inneignum á ismynt skipt yfir í íslenskar krónur til að koma í veg fyrir brot á MiCA reglugerðinni sem tók gildi 1. júlí 2026. Samkvæmt tilmælum frá Seðlabanka Íslands og fjármálaeftirlitinu er ismynt að öllu óheimlt að stunda starfsemi sem telst leyfisskyld samkvæmt MiCA reglugerðinni.

Hafir þú átt inneign á ismynt við þjónustuslit getur þú sent okkur kennitölu og reikningsupplýsingar á info@ismynt.is til að fá eftirstöðvar reiknings þíns.

Notkunarskilmálar